Fyrsta íslenska fræðiritið sem kemur út í frumútgáfu á rafbókarformi

Í dag gefur UrðuSjóðurinnr bókafélag út bókina Sjóðurinn. Saga Fiskiveiðasjóðs Íslands og Fiskveiðasjóðs Íslands 1905-1997 eftir Jón Þ. Þór, sagnfræðing og prófessor við Háskólann á Akureyri. Bókin mun vera hin fyrsta meðal íslenskra fræðirita sem gefin er út í frumútgáfu sem rafbók og sem slík er hún seld hjá rafbókabúðinni Skinnu (skinna.is).

Fáar stofnanir hafa gegnt jafn veigamiklu hlutverki í uppbyggingu íslensks efnahagslífs og atvinnulífs á 20. öld og Fiskveiðasjóður Íslands sem starfaði í 92 ár og er ein farsælasta fjármálastofnunin í sögu þjóðarinnar. Sjóðurinn, eins og Fiskveiðasjóður hét í daglegu tali útgerðarmanna, fjármagnaði stóran hluta uppbyggingar vélbátaflotans á 20. öld og síðustu árin einnig uppbyggingu togaraflotans auk hvers kyns stærri skipa. Þá kom hann ennfremur mikið að uppbyggingu fiskiðjuvera, hafnarframkvæmda, verbúða o.s.frv. Árið 1997 var Fiskveiðasjóður sameinaður fleiri sjóðum í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins (FBA) sem átti sér skamma og heldur dapurlega sögu.

Sjóðurinn. Saga Fiskiveiðasjóðs Íslands og Fiskveiðasjóðs Íslands 1905-1997 er sem áður segir fyrsta íslenska fræðiritið sem gefið er út í frumútgáfu sem rafbók. Bókin er fáanleg hjá rafbókabúðinni Skinnu og kostar 4.990 krónur.

Bók frá Urði er góð bók!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband