Aftur til kreppuhagfræði
26.2.2011 | 17:08
Paul Krugman hefur lengi verið álitinn á meðal færustu hagfræðinga heims og er jafnframt einn sá mest lesni meðal hagfræðinga. Er þá ekki endilega verið að vísa til bloggs hans heldur einnig bóka hans. Á meðal þeirra má nefna International economics, kennslubók sem hann skrifaði ásamt öðrum virtum hagfræðingi að nafni Maurice Obstfeld og er almennt talin ein besta kennslubókin sem völ er á í alþjóðahagfræði, The Conscience of a Liberal og The Accidental Theorist.
Bókum Krugmans hefur almennt verið vel tekið og þær selst vel enda þykir hann hafa einstaklega gott lag á að útskýra flókin viðfangsefni hagfræðinnar fyrir hinum almenna lesanda.
Bók hans The Return to Depression Economics and the Crisis of 2008 kom út á íslensku hjá Urði bókafélagi árið 2009. Bókin er enn fáanleg og hana er m.a. að finna á bókamarkaðnum sem nú stendur yfir í Perlunni.
Bók frá Urði er góð bók!
|
Krugman: Krónan sýnir gildi sitt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |

gattin
sverrirth
bjarnihardar

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.